Ólínublogg

Ég hef tvisvar séð Ólínu vera að fylgjast með því sem er að gerast í sjónvarpinu, fulla áhuga. Í fyrra skiptið var það þegar sjónvarpsdagatalið stórundarlega var. Hún fylgdist þá áhugasöm með allt til enda. Svo var það núna að hún færði sig til á gólfinu þar sem hún er að ormast til þess að sjá táknmálsfréttirnar betur. Merkileg áhugamál hjá henni.

One Response to “Ólínublogg”

  1. Jóhanna Says:

    Þetta er stórmerkilegt. Ég myndi nú banna þetta jóladagatal það er svo hræðilegt. Helga Gný fannst veðurfréttirnar langskemmtilegastar á þessum aldri.