Fatlafól, fatlafól…

Í dag eignaðist ég minn fyrsta hjólastól. Hann er svartur Bryndís. Ég veit að það er ekki samkvæmt hátískunni en hann er þó allavega klassískur. Það var eins gott að ég fékk stólinn afhentan í dag þar sem ég þarf náttúrulega að nota hann í meðmælagöngunni á morgun.

* * *

Ljómandin gaman á Café Oliver. Ég smakkaði Mojito í fyrsta skipti. Drykkurinn rann ljúflega niður.

3 Responses to “Fatlafól, fatlafól…”

  1. Hildigunnur Says:

    mojito er góður, sérstaklega ef maður getur tuggið mintublöðin :-) Reyni að kíkja í gönguna á morgun (hmmm, á eftir), fer pínu eftir planinu hjá krökkunum, minnir að það séu einhverjar æfingar um 4leytið.

  2. Þóra Says:

    HA? aldrei drukkið Mojito áður?! Þú verður augljóslega að fara oftar með mér niðrí bæ :) :)

  3. Ingibjörg Says:

    Til hamingju með að hafa fengið stólinn í tæka tíð fyrir gönguna. Ég kem þá í dag og leik við Ólínu meðan þið Stebbi farið og takið þátt í að reyna að koma vitinu fyrir alþingismennina!