Uppsögn

Ég sagði Austurglugganum upp í dag. Ég gerðist áskrifandi í ritstjórnartíð Jóns Knúts og fannst blaðið bara ansi ágætt og gaman að fá fréttir að “heiman” í hverri viku.

Síðurstu mánuði hefur mér hinsvegar fundist Austurglugginn grautleiðinlegur og í dag gafst ég endanlega upp á honum. Ég get ekki einu sinni fengið mig til að halda áfram að kaupa hann með þeim rökum að maður verði nú að styðja við bakið á blaðaútgáfu á landsbyggðinni. Blaðið er bara einfaldlega of leiðinlegt til að slík hugsun eigi einhvern sjens.

2 Responses to “Uppsögn”

  1. JKÁ Says:

    Af því að ég er breyskur maður og lifi samkvæmt dauðasyndunum sjö þá fannst mér gaman að lesa þetta. Og svo máttu alveg vera grúbbía - og Stefán má vera rótari.

  2. skotta Says:

    fyndið í ljósi þess hversu margir sögðu blaðinu upp á meðan fyrrverandi ritstjóri var við völd.

    Verð að viðurkenna að mér finnst það mikið SKÁRRA núna. En það er huxanlega af því að fréttirnar eru ekki lengur allar neðan af fjörðum.