Jahá
Sunday, December 18th, 2005
You taste like baked alaska. Your sweetness is
only matched by your smooth and creamy texture.
You are sure to set fire to anyone’s taste
buds.
How do you taste?
brought to you by Quizilla

You taste like baked alaska. Your sweetness is
only matched by your smooth and creamy texture.
You are sure to set fire to anyone’s taste
buds.
How do you taste?
brought to you by Quizilla
Stefán er að horfa á Star Wars. Ég hef aldrei horft á þær myndir. Miðað við það sem ég sé útundan mér virðist mér ég ekki hafa verið að missa af neinu sem líklegt er að mér myndi finnast skemmtilegt. Svo ég ætla bara að hanga aðeins meira á netinu og fara svo bara að sofa.
Á morgun verður slatta af jólagjöfum pakkað inn. Á mánudaginn eiga þær að fara í póst austur. Eða flutningabíl. Ég held að það sé ódýrara.
Ég hef tvisvar séð Ólínu vera að fylgjast með því sem er að gerast í sjónvarpinu, fulla áhuga. Í fyrra skiptið var það þegar sjónvarpsdagatalið stórundarlega var. Hún fylgdist þá áhugasöm með allt til enda. Svo var það núna að hún færði sig til á gólfinu þar sem hún er að ormast til þess að sjá táknmálsfréttirnar betur. Merkileg áhugamál hjá henni.
Mæli með því að allir sem átt hafa leiðinlega og pirrandi dag komi sér vel fyrir með nammi og lesi auglýsingarssnepil Tiger. Það létti allavega mína lund og ég er eiginlega nánast búin að gleyma öllum þeim raunum sem ég ætlaða að rekja fyrir Stefán þegar hann kæmi heim. Ég er meira að segja nálægt því að láta sumar auglýsingarnar glepja mig.
Nú er búið að finna upp vél sem þvær þvott og aðra sem þurkar þvott. Af hverju er enginn sem finnur upp vél sem brýtur saman þvott og raðar honum inn í skápa? Ó hvað slík uppfinning myndi létta mína lund. Nú finnst mér að einhver góðhuga sál ætti bara að taka mig á orðinu og finna græjuna upp.
Vígði nýja hjólastólinn minn í göngunni í dag. Leðurbuxurnar komu sér vel en án þeirra hefði ég örugglega króknað. Með tíð og tíma mun Stefán vonandi verða fyrirtaks hjólastólabílstjóri en þangað til er vissara fyrir fólk að ganga ekki fyrir framan okkur. Svo gæti líka verið vissara fyrir mig að verða mér úti um öryggisbelti til þess að eiga ekki á hættu að enda liggjandi í götunni. En við eigum örugglega eftir að fá nóg af tækifærum til að æfa okkur á næstunni.
* * *
Í gær hringdi sjúkraþjálfari úr MS-heimilinu í mig og spurði mig hvort ég hefði áhuga á sjúkraþjálfun á hestbaki. Ég var fljót að segja Já takk þrátt fyrir að hafa aldrei verið sérstakur aðdáandi hesta. Nema kannski saltaða niður í tunnu. Í fína bæklingnum sem ég fékk mér til upplýsingarer sagt að ekki beri að líta á Hippotherapy sem útreiðar heldur sem meðferðarform þar sem hesturinn er notaður sem meðferðartæki. Enda frekar erfitt að líta á það sem útreiðar þegar hestur er teymdur undir manni.
En mér finnst þetta samt ótrúlega spennandi og er sannfærð um að þetta mun allavega ekki hafa slæm áhrif á mig. Ég var samt svolítið þreytt eftir tímann í dag.
* * *
Hrönn og Svenni komu í bæinn í kvöld. Þau fengu inni hjá okkur. Við gerum samt ekki ráð fyrir að sjá þau mikið þar sem þau er með stífa dagskrá alla helgina og núna þegar ég hef tækifæri til að vera góður gestgjafi og spjalla við gestina mína hangi ég í tölvunni.
Í dag mætti ég svo í fyrsta tímann. Þjálfunin fer fram í hesthúsahverfinu í Hafnarfirði.
Í dag eignaðist ég minn fyrsta hjólastól. Hann er svartur Bryndís. Ég veit að það er ekki samkvæmt hátískunni en hann er þó allavega klassískur. Það var eins gott að ég fékk stólinn afhentan í dag þar sem ég þarf náttúrulega að nota hann í meðmælagöngunni á morgun.
* * *
Ljómandin gaman á Café Oliver. Ég smakkaði Mojito í fyrsta skipti. Drykkurinn rann ljúflega niður.
Skýrsla Stefáns Ólafssonar, Örorka og velferð á Íslandi, er komin á netið. Hana má nálgast á heimasíðu Öryrkjabandalags Íslands (bara að skrolla aðeins niður á síðunni).
* * *
Á morgun fer ég út að borða með stelpunum úr árgangi ´77 að austan. Við ætlum á Café Oliver. Ég hlakka til.
* * *
Allir sem ekki mæta á föstudaginn eru gulrætur!
Eldri borgarar og öryrkjar ætla að efna til göngu og útifundar föstudaginn 9. desember 2005.
Gengið verður frá Hallgrímskirkju kl. 16.30 og útifundur á Austurvelli hefst kl. 17.00.
Skólahljómsveit Kópavogs fer fyrir göngunni.
Dagskrá:
Ávörp flytja: Margrét Margeirsdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og Sigursteinn Másson formaður Öryrkjabandalags Íslands
Ólafur Ólafsson formaður Landssambands eldri borgara afhendir forseta Alþingis undirskriftalista með áskorun til stjórnvalda.
Öryrkjar afhenda alþingismönnum jólagjöf
Skemmtiatriði:
Rímnakveðskapur - Steindór Andersen
Ákall lúinnar kvinnu á ellilaunum einum eftir Helga Seljan - Aðalheiður Sigurjónsdóttir flytur
Tónlistaratriði:
Gísli Helgason
Mugison
Hljómsveitin Sér á báti
Eldri borgarar og öryrkjar fjölmennum og sýnum styrk okkar.
Landssamband eldri borgara
Öryrkjabandalag Íslands
Ég sagði Austurglugganum upp í dag. Ég gerðist áskrifandi í ritstjórnartíð Jóns Knúts og fannst blaðið bara ansi ágætt og gaman að fá fréttir að “heiman” í hverri viku.
Síðurstu mánuði hefur mér hinsvegar fundist Austurglugginn grautleiðinlegur og í dag gafst ég endanlega upp á honum. Ég get ekki einu sinni fengið mig til að halda áfram að kaupa hann með þeim rökum að maður verði nú að styðja við bakið á blaðaútgáfu á landsbyggðinni. Blaðið er bara einfaldlega of leiðinlegt til að slík hugsun eigi einhvern sjens.