Þórey Pétursdóttir kitlaði mig. Það var ekki andskotalaust að telja öll þessi atriði upp en það hafðist þó á endanum. Og hér kemur listinn:
Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- Ferðast til Mið-austurlanda
- Læra að elda kjötsúpu
- Reka herinn
- Kafa í tæru vatni
- Fara í sólarlandaferð
- Læra (allavega smá) gelísku
- Smakka hundakjöt
Sjö hlutir sem ég get:
- Fætt barn á mettíma
- Spilað Stairway to heaven á blokkflautu
- Búið til jafning sem gleður gamla einsetumenn
- Heklað og prjónað ef ég bara nenni
- Talað dönsku eins og innfædd
- Bitið í litlu tána á mér
- Látið hægri menn fara óstjórnlega í taugarnar á mér
Sjö hlutir sem ég get ekki:
- Drukkið Campari
- Haldið jafnvægi (já ég meina bara svona almennt)
- Hjólað (leiðir af jafnvægisleysinu)
- Sagt eitthvað fyndið án þess að hlæja sjálf
- Haldið lagi
- Fundist í lagi að pyntingar sé stundaðar hvort sem það er á föngum eða einhverjum öðrum
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið;
- Bringuhár
- Hugsjónir
- Hlýjar hendur
- Húmor
- Skeggbroddar
- Hlýjar tær
- Sjálfstraust
Sjö þekktir sem heilla:
- Johnny Deep
- Gerard Departieu
- Che Guevara
- Stefán Pálsson
- Sean Connery
- Felix Bergsson
- Gael García Bernal
Sjö orð/setningar sem ég segi oft:
- Ertu búin að kúka?
- Heyrðu manni…
- Jamm
- Hvernig skrifar maður…?
- Úff
- Hvað er klukkan?
- Já maður
Sjö hlutir sem ég sé núna:
- Nýja bangsan hennar Ólínu, hann Sir Llion
- Verulega ljót barmmerki sem Stefán er að gera fyrir ónefnd samtök
- Rauðvínsglas
- Tóman pela
- Fallegu sokkana sem Úrsúla prjónaði
- Barnavagn
- Blómakreytingu sem ég fékk frá stjórn MS-félagsins þegar ég var síðast á St.Jó.
Ég ætla svo að kitla Ernu, Pullu og Sigga Óla.