Móðir mín frambjóðandinn

Mamma lenti í fjórða sæti í forvali VG í Kópavogi. Ég held að það sé bara ágætt að hún lenti ekki ofar enda hefur hún í nógu öðru að snúast en að vera í toppbaráttunni í Sveitastjórnarkosningunum. Ég veit hinsvegar að konan býr yfir pólitískri reynslu sem mun koma framboðslistanum í heild til góða. Svo vona ég náttúrurlega líka að hún geti með því að taka þátt í pólitíkinni komið þekkingu sinni á skólamálum og málefnum barna af erlendum uppruna á framfæri og bætt ástandið í þeim málum. Ætla að kíkija á Katalínu á eftir og sjá hvernig Kópavorgbúar fagna.

* * *

Dagurinn fór annars í fundi. Fyrst var fundur hjá kvennahreyfingu ÖBÍ. Þar talaði Elín Ebba um það hvað maður getur gert til að halda geðheilbrigði sínu. Konan er algjör snillingur og fyrirlesturinn var hressilegur og skemmtilegur. Það ætti að senda ALLA á fyrirlestur hjá henni. Það er hreinlega mannbætandi.

Svo fór ég á fund hjá átakshópi öryrkja. Þar var góður andi og greinilegt að öryrkjar eru í góðum gír þrátt fyrir að almannatryggingakerfið sé rotið og ömurlegt.

Comments are closed.