Sjúkraþjálfun

í dag mætti ég í minn fyrsta tíma í sjúkraþjálfun. Sjúkraþjálfarinn er hress þýskur strákur. Honum fannst það merkilegt að ég sé búin að vera með MS í sjö ár en að mér hafi aldrei fyrr verið vísað í sjúkraþjálfun af lækni. Það finnst mér raunar líka. Ég held að hér sé um kynslóðarbil hjá læknum að ræða. Eldri læknar hafa tröllatrú á lyfjum en hugsa kannski ekki nógu mikið um líkamlegt atgervi að örðu leyti. Yngri læknar vilja fjölbreyttari meðferð. En svo er þetta örugglega líka mjög einstaklingsbundið meðal lækna.

Allavega þá líst mér þrusu vel á. Finnst mér þegar líða betur í líkamanum eftir fyrsta tímann. Svo nú mun ég telja niður í tímann á föstudaginn. Ég sá reyndar um leið og ég fór að gera einhverjar æfingar að líkamlegt atgervi mitt hefur líklega aldrei verið verra. En þar sem ég er ofurbjartsýn í dag þá sé ég að leiðin getur náttúrulega bara legið upp á við.

* * *

Ólína er búin að læra að skríða aftur á bak. Hún endar iðulega frekar fúl undir sófaborði.

One Response to “Sjúkraþjálfun”

  1. Ingibjörg Says:

    Til hamingju með að vera byrjuð í sjúkraþjálfuninni. Vonandi verður þú ekki með miklar harðsperrur á morgun og hinn!