Er ekki allt í lagi?
Wednesday, November 30th, 2005Það er greinilegt að það er ekki í lagi með sumt fólk. Sbr. þessa frétt.
Er dofin í fingrum og tám í dag. Er ekki alveg nógu sátt við það.
Á morgun fer Stefán í fæðingarorlof. Ég hlakka mikið til.
Það er greinilegt að það er ekki í lagi með sumt fólk. Sbr. þessa frétt.
Er dofin í fingrum og tám í dag. Er ekki alveg nógu sátt við það.
Á morgun fer Stefán í fæðingarorlof. Ég hlakka mikið til.
Ég varð fyrir ótrúlegum vonbrigðum áðan þegar ég heyrði jólalag á rás 2. Ég hélt að þar væri maður nú öruggur fram til 1.des.
Ég át síðustu sterapilluna í þessum skammti í gær. Nú er svo bara að vona að áhrifin af kúrnum vari í einhvern tíma. Ég finn samt alveg að ég er ekki alveg jafn hress og þegar ég var að éta um tíu töflur á dag. Þá var ég líka helvíti hress. Ég þarf þó greinilega að halda áfram að éta róandi töflurnar í einhverja daga. Er núna í hádeginu búin að vera svo strekt að ég hef alvarlega verið að íhuga að finna mér pappírspoka til að anda í. Ólína sefur sem betur fer bara hið værasta úti í vangi svo ég eipa allavega ekki á henni.
Ætli við reynum ekki að kíkja á BZ seinnipartinn eða í kvöld. Svo er það sjúkraþjálfun á eftir.
Ólína eignaðist forláta trébíl í gær. Þetta er fyrsti bíllinn sem hún eignast og ég held að það sé óhætt að fullyrða að þetta er uppáhalds leikfangið hennar í augnarblikinu.
Hún er alveg að ná tökum á skriðinu. Er þó ennþá betri í því að fara aftur á bak en áfram. En ég hef fulla trú á að þetta komi bara núna á næstu dögum.
Annars er barnið orðið svo fullorðið að hún fékk smá kjöt í kvöldmat í gær og fannst það bara ágætt.
Mamma lenti í fjórða sæti í forvali VG í Kópavogi. Ég held að það sé bara ágætt að hún lenti ekki ofar enda hefur hún í nógu öðru að snúast en að vera í toppbaráttunni í Sveitastjórnarkosningunum. Ég veit hinsvegar að konan býr yfir pólitískri reynslu sem mun koma framboðslistanum í heild til góða. Svo vona ég náttúrurlega líka að hún geti með því að taka þátt í pólitíkinni komið þekkingu sinni á skólamálum og málefnum barna af erlendum uppruna á framfæri og bætt ástandið í þeim málum. Ætla að kíkija á Katalínu á eftir og sjá hvernig Kópavorgbúar fagna.
* * *
Dagurinn fór annars í fundi. Fyrst var fundur hjá kvennahreyfingu ÖBÍ. Þar talaði Elín Ebba um það hvað maður getur gert til að halda geðheilbrigði sínu. Konan er algjör snillingur og fyrirlesturinn var hressilegur og skemmtilegur. Það ætti að senda ALLA á fyrirlestur hjá henni. Það er hreinlega mannbætandi.
Svo fór ég á fund hjá átakshópi öryrkja. Þar var góður andi og greinilegt að öryrkjar eru í góðum gír þrátt fyrir að almannatryggingakerfið sé rotið og ömurlegt.
Það væri lýgi að reyna að halda því fram að ég borði lítið þessa dagana. Mér er þó nokk sama meðan ég get enn hneppt buxunum mínum…og það gengur enn. En ég ætti kannski að vera því fegin að nú er verulega fraið að síga á seinnihlutan á sterakúrnum. Annars gæti ég þurft að fara í veruleg fjárútlát við endurnýjun á fataskápnum.
Sjúkraþjálfun á morgun. Ég hlakka til.

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.
Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.
Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.
Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.
Hvaða tröll ert þú?
* * *
Læknirinn ávísaði mér á nýja tegund af róandi í dag. Mér líður mun betur. Annars er steraskammturinn kominn niður í 6 töflur á dag svo það er nú varla orð á þessu hafandi lengur.
í dag mætti ég í minn fyrsta tíma í sjúkraþjálfun. Sjúkraþjálfarinn er hress þýskur strákur. Honum fannst það merkilegt að ég sé búin að vera með MS í sjö ár en að mér hafi aldrei fyrr verið vísað í sjúkraþjálfun af lækni. Það finnst mér raunar líka. Ég held að hér sé um kynslóðarbil hjá læknum að ræða. Eldri læknar hafa tröllatrú á lyfjum en hugsa kannski ekki nógu mikið um líkamlegt atgervi að örðu leyti. Yngri læknar vilja fjölbreyttari meðferð. En svo er þetta örugglega líka mjög einstaklingsbundið meðal lækna.
Allavega þá líst mér þrusu vel á. Finnst mér þegar líða betur í líkamanum eftir fyrsta tímann. Svo nú mun ég telja niður í tímann á föstudaginn. Ég sá reyndar um leið og ég fór að gera einhverjar æfingar að líkamlegt atgervi mitt hefur líklega aldrei verið verra. En þar sem ég er ofurbjartsýn í dag þá sé ég að leiðin getur náttúrulega bara legið upp á við.
* * *
Ólína er búin að læra að skríða aftur á bak. Hún endar iðulega frekar fúl undir sófaborði.
Skrapp áðan og lét lita á mér augabrúnirnar og augnhárin. Datt í hug að smá litur myndi draga athygglina svolítið frá hamstrakynnunum. Er bara ánægð með útkomuna. Reyndar var þetta hin besta afslöppun að láta lita sig svona, því hún Helen er ekkert að flýta sér heldur virðist bara gefa sér allan tíman í heiminum til að dúlla við mann. Einmitt það sem ég þurfti á að halda núna. Er því vel afslöððuð og endurnærð.
* * *
María og Jói komu í morgun og tóku Mánagötuna í gegn. Hér er því allt skínandi hreint og ilmandi. Það er bara verst að mér finnst svolítið eins og jólahreingerningin hafi verið tekin rúmum mánuði of snemma. En þau eiga nú reyndar eftir að koma aftur blessuð.
* * *
Von á mömmu, Dísu og Guðmundi í kvöldmat og ömmu og Valda í morgunkaffi í fyrramálið. Stanslaust stuð.
Ég lít orðið út eins og hamstur. Það er ekki gaman. Heyrði reyndar í lækinum í dag og hún sagði að ég mætti alveg auka skamtinn af róandi. Ég verð því líklega rólegur hamstur á morgun.