Svekk

Í marga mánuði hefur það verið að angra mig að póstforritið mitt er yfir fullt og ég sífellt að eyða pósti til að vera ekki yfir úthlutuðum kvóta. Um daginn færði ég þetta vandamál mitt í orð við Hrönn. Hún benti mér á að það væri ekki nóg að eyða pósti úr innhólfinu heldur þyrfti einnig að tæma úthólfið reglulega. Í gærkvöldi settist ég niður og fór í smá tiltekt.

Ég skannaði yfir póstinn í úthólfinu og sá að þar var ekkert sem ég þyrfti að halda upp á svo ég eyddi bara öllu sem fyrir varð. Endurhlóð svo síðuna spennt yfir því hvaða árangri þetta myndi skila. Kvóta notkun mín féll úr um 99% niður í 9,7%. Það er frekar mikið svekk að svona einföld aðgerð hafi reddaði öllu. Og svo sannar þetta náttúrulega líka ömurlega litla þekkingu mína á tölvum og almennt fattleysi.

2 Responses to “Svekk”

  1. Bryndís Says:

    Það er ákaflega einfalt að eyða þessu vandamáli, póstfang hjá Google er allt sem þú þarft

  2. Hrönn Says:

    Já svo þetta hefur virkað ;-) Gaman að sjá hvað þú ert búin að vera dugleg að blogga, nóg að gera hjá mér við að lesa!