Hugsanleg tungumálakunnátta?

Í dag voru tveir aðalfundir afgreiddir. Aðalfundur MS-félagsins og aðalfundur Ásatrúarfélagsins. Ólína mætti auðvitað á báða fundina og fannst svo hrikalega gaman að hún hefur nánast ekkert sofið frá því hún vaknaði um tíu leytið í morgun.

Ég var kosin í stjónr MS-félagsins en það sem meira er um vert er að ég var líka endurkjörinn sem fulltrúi félagsins í aðalstjórn ÖBÍ. Það hefði verið mjög vandræðalegt hefði ég ekki náð því kjöri þar sem það er forsenda þess að ég geti setið í framkvæmdarstjórn ÖBÍ. Það vildi bara svo óheppilega til að aðalfundur MS var haldinn á eftir aðalfundi ÖBÍ. Ég tók sem sagt smá áhættu en allt gekk upp. Annars las ég í því merka tímariti Birtu að það væri ánægjuaukandi fyrir mann að taka svolitla áhættu. Ég verð þó að viðurkenna að eftir að þetta er allt komið á hreint er mér talsvert létt og smá hnútur horfinn úr maganum. Ég þakka auðvitað þeim sem sýndu mér traust og kusu mig.

Annars er það að frétta að Ólína er búin að læra að gera hrygluhljóð neðst í hálsinum og finnst það núna það svalasta af öllu svölu. Það er þó einnig smá möguleiki að barnið sé farið að tala hebresku en þar sem við foreldrarnir kunnum ekki hebresku getum við ekki verið alveg viss og það er spurning hvort við munum nokkurntíma komast að hinu sanna í málinu þar sem enginn sem ég þekki kann að mér vitandi hebresku.

One Response to “Hugsanleg tungumálakunnátta?”

  1. Stefán J. Says:

    Væri ekki ráð að spyrja Elías Davíðsson? Hann kann alla vegana næga hebresku til að gera hebresk mótmælaspjöld þegar ísraelskir ráðherrar koma til landsins.