Sjöundi ættliður

Ólína hefur verið nokkuð dugleg að sitja landsfund Vinstri grænna. Henni finnst voða gaman á svona fundum. Þar er nefnilega fullt af fólki sem brosir framan í hana og segir gúdsí gú. Á föstudaginn hitti hún manni nokkrum á fundinum sem heitir Guðmundur Sigurjónsson - e.t.v. betur þekktur undir nafninu Gvendur Stalín. Þetta væri ef til vill ekki svo merkilegt nema fyrir þær sakir að Ólína er sjöundi ættliðurinn í beinan kvennlegg sem Gvendur kynnist. Geri aðrir betur.

3 Responses to “Sjöundi ættliður”

  1. JKÁ Says:

    Já, þetta er soldið makalaust. Gvendur er náttla snillingur.

  2. josefine Says:

    Er þetta sami maður og var kallaður litli Stalín og rak bókabúð á Norðfirði?

  3. josefine Says:

    Er þetta sami maður og var kallaður litli Stalín og rak bókabúð á Norðfirði?