Ég er komin heim í heiðar kofann

Þá er ég komin heim eftir ágætis vist á Hótel St. Jó. Reyndar svolítið ofvirk og strekkt en mun stöðugri á fótunum og full bjartsýni um að sterakúrinn hafi tekist vel. Nú tekur hinsvegar við þetta tímabilsástand þar til nýrnahetturnar fatta að fríið þeirra er búin og að starfa þeirra sé óskað á ný. Vona bara að allir sýni þessu skilning og umberi skapsveiflurnar.

Hin leiðin er reyndar að reyna að forðast það að umgangast mig næstu vikuna. Það er reyndar alveg ágætt líka. ég á hvort eð er bara að hvíla mig.

En hvað sem öllum skapsveiflum líður er VOÐA notalegt að vera komin aftur heim til Ólínu og Stefáns. Enda hafa þau tekið mér opnum örmum og gert allt sem þau geta til að stjana við mig.

One Response to “Ég er komin heim í heiðar kofann”

  1. Þóra Says:

    Velkomin heim! :)
    Kveðjur frá USA