Ribena hefur haldið í mér tórunni

Ég hef nánast ekkert borðað í þrjá daga því mér hefur verið illt í maganum. Miðað við það hvað ég er óhress núna er greinilegt að ég myndi ekki þola marga daga alveg án matar.

Það verður því spennandi hvernig mér mun ganga að éta pastabakkan sem Stefán pikkaði upp í Nóatúni. Það var það eina sem mér datt í hug að ég hefði mögulega lyst á að borða. Annars hef ég ekki bragðað svona pastabakka í nokkur ár eða síðan ég át gjörsamlega yfir mig af svoleiðis mat, veturinn sem við Stefán vorum að byrja að slá okkur upp.

2 Responses to “Ribena hefur haldið í mér tórunni”

  1. Ingibjörg Says:

    Þú verður að fara vel með þig (og athuga allar dagsetningar á því litla sem þú lætur ofaní þig!)
    Vonandi fær Ólína litla ekki í magann af Fréttablaðinu!

  2. Þórey P Says:

    Þetta er ekki gott að heyra, ég myndi prófa avocado, það er ljómandi gott, og strá smá salt yfir. Læt ég bara eins og ég hafi oft verið lystarlaus ;) Hefur aldrei komið fyrir og gerist held ég í náinni framtíð….En ég heyrði einhverntímann af þessu trixi.