Til hverra er verið að höfða?
Auglýsingar þar sem telja á fólki trú um hollustugildi matarins með því að tiltaka að hann sé fitusnauður fara óskaplega í taugarnar á mér. Ég veit ekki af hverju. Mér finnst feitt kjet ekki einu sinni gott. Um daginn sá ég þó hinsvegar fitusnauða auglýsingu sem mér fannst bráðfyndin. Þar sagði: MEIRA PRÓTÍN - MINNI FITA. Það besta var þó að þarna var verið að auglýsa kattamat.