Skínandi hreint og pússað

Þannig er einmitt heimili mitt í dag. En þau María og Jóhannes komu og fóru eins og stormsveipir um íbúðina og gerðu hana skínandi fína.

Svo er bara að vona að Stefán geti komið nýja ísskápnum í gagnið í kvöld því það yrði vissulega til að fríkka heimilið enn frekar að losna við hinn ísskápin úr stofunni.

Svo verður fólk bara að drífa sig í heimsókn og skoða nýja fallega eldhúsið. Það er að vísu ekki alveg tilbúið, þar sem það á enn eftir að sérsmíða einn skáp í það, ásamt eldhúsborði en það eru nú bara smáatriði. Reyndar er von á fyrstu gestunum síðar í dag.

One Response to “Skínandi hreint og pússað”

  1. Hildigunnur Says:

    haa, heita þau ekki Heiðar og Margrét ;-)

    eða neeeei…