Efni í kverúlant?

Lunganum úr degiunm eyddi ég á aukaaðalfundi Ásatrúarfélagsins. Ekki get ég beint sagt að það hafi verið skemmtilegt en stundum þarf að gera fleira en gott þykir. Það vill til að það var slæðingur af skemmtilegu fólki á fundinum og við það var hægt að ræða þegar maður fékk nóg af misgáfulegum ræðunum. Þorvaldur Þorvaldsson nokkur var fundarstjóri og mér finnst að honum hafi bara tekist stjórnunin vel í öllum meginatriðum. Það mætti kannski helst segja að stytta hefði mátt ræðutíma framsögumanna fyrr en gert var en með svona maraþonfundi voru reyndar ákveðin mál vonandi bara afgreidd og verða ekki til að þreyta mann í framtíðinni. Kannski er það þó full mikil bjartsýni, svona miðað við hvaða félagsskap við erum að tala um.

Á Grandagarði 8 (sem vonandi verður minnst sem fyrrverand húsnæðis Ásatrúarfélagsins) er fáránlegasta lyfta sem ég hef séð. Um þriggja hæða hús er að ræða og fyrir liggur leyfi byggingafulltrúa um að lyfta megi þakinu og bæta einni hæð við. Lyftan (sem nýlega var sett upp) gengur hinsvegar aðeins milli fyrstu og annarar hæðar og staðsetning hennar útilokar að hún geti farið hærra. Óeining milli eiganda í húsinu gerir þetta víst að verkum og afleiðingin er náttúrulega bara fáránleg.

Ólína, litla hetja (mér finnst einhvernvegin óviðkunnanlegt að tala um engla í þessu samhengi) sat allan fundinn og virtist skemmta sér hið besta. Ef hún heldur þessu fundþoli í framtíðinni getur hún orðið skæðast kverúlant sem sögur fara af og með þann alþykkasta fundarass sem um getur.

Annars heldur litla fjölskyldan austur á land á morgun og er meiningin að vera þar í viku. Tímanum verður varið í að liggja í leti, drekkar kaffi hjá ættingjum og vinum, skoða nýju göngin og kannski mótmæla svolítið í Reyðarfirði. Semsagt útlit fyrir ljómandi skemmtilega ferð.

En nú er kominn tími á að baða okkur Ólínu. Það er ekki hægt að leggja upp í langferðir skítugur.

3 Responses to “Efni í kverúlant?”

  1. Þóra Says:

    Hæ, ég er komin með gmail (thorapals@gmail.com), þannig að nú er barasta málið að senda mér myndir af Ólínu! Ég hef fengið óskir um að búa til lítið Ólínu-albúm á myndasíðunni minni.
    Kveðjur úr sólinni í USA!

  2. Þórey Says:

    Það væri nú bara verulega einkennilegt ef þessi litli grís kemur ekki til með að hafa úthald í að sitja á fundum ;) Hún á nú ekki langt að sækja áhugann á því ….

  3. Erna E. Says:

    Klukk, þú ertann. Sbr. http://ernae.blogspot.com/2005_09_01_ernae_archive.html#112714970119905032