Spennan í hámarki

Ólína fékk graut í fyrsta skipti í gær. Hún varð aðallega bara hissa og virtist ekki alveg vita hvernig hún ætti að bregðast við. Í kvöld vissi hún hinsvegar upp á hár hvernig rétt viðbrögð væru og galopnaði munninn og var hin spenntasta. Það er því mikið stuð þessa dagana.

En talandi um hár - mér sýnist Ólína vera að fá ljóst hár í staðinn fyrir það rauða sem hún fæddist með.

Ofvirknin eftir sterana er aðeins að minnka. Það verður því áhugavert að sjá hvort ég kemmst af með eina svefntöflu í nótt.

One Response to “Spennan í hámarki”

  1. Vigdís Says:

    Namminammi grautur :D Hún ætlar að flýta sér að verða jafn stór og ég!