Garpar og sófakartöflur

Hvað er betra að gera á sunnudegi en að hanga á netinu? Á vafri mínu rakst ég á snilldar ferðasögu eftir Huga Þórðarson. Allavega er hún snild fyrir þá sem þekkja eitthvað til svæðisins eða ferðalanganna. Og ég þekki hvoru tveggja svolítið. Verð þó að viðurkenna að mig óraði ekki fyrir því að þeir væru svona miklir garpar.

Var ekki sérlega menningarleg í gær. Fór þó og skoðaði Friðarhúsið. Amma Stefáns borðaði svo kvöldmat hjá okkur og við horfðum saman á sjónvarpið. Það var afbragðsfínt og letilegt. Eftir að amman fór heim að sofa hélt ég áfram að horfa á sjónvarpið.

One Response to “Garpar og sófakartöflur”

  1. Hugi Þórðar Says:

    Allir sem kalla mig “garp” fá comment í verðlaun :-) .