Öfundsjúk

Mikið held ég að það sé gott að sofa kappklædd úti í svona veðri og heyra rigninguna og vindinn lemja á vagninum en vera samt sjálfri funheitt. Ég verð að viðurkenna að ég öfunda Ólínu ferlega af þessu…

- - -

Tókst að redda því að ég fékk lyfin mín á föstudaginn og er ekki fjarri því að þau séu að hafa einhver áhrif. Fór allavega í smá göngutúr áðan. Það er framför.

- - -

Það er verið að múra eldhúsið mitt. Það er e.t.v. ekki hægt að segja að framkvæmdirnar gangi hratt en þær mjakast þó. Ég er farin að sjá það í hyllingum að eignast aftur mitt eigið eldhús og á góðum degi tel ég mér trú um að þar verði sífellt verið að elda eða baka eitthvað gómsætt.

Jamm.

One Response to “Öfundsjúk”

  1. Jóhanna Says:

    Hallú, gott að það er allt að gerast hjá ykkur. Vorum að koma heim svo þið meigið eiga von á samskiptum við okkur áður en varir:)