Kertum fleytt á morgun
Annað kvöld verður kertum fleytt á Tjörninni í Reykjavík til þess að missast þeirra sem dóu þegar Bandarikjamenn vörpuðu kjarnorkusprengjum á Japönsku borgirnar Hirosima og Nagasagi fyrir 60 árum.
Safnast verður saman við Suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg). Ingibjörg Haraldsdóttir kennari flytur ávarp samstarfshópsins og Felix Bergsson flytur ljóð. Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson. Kerti kosta kr. 400.
Þú mætir auðvitað!
Fyrr um kvöldið verður einnig fundur í Tjarnarsalnum. Dagskrá hans er eftirfarandi:
Í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur verður samkoma sem hefst kl. 20:30.
Þar mun sænski rithöfundurinn og fræðikonan Monica Braw flytja erindi um afleiðingar árásanna, afdrif fólksins sem lifði þær af og hvernig stjórnvöld í Japan og Bandaríkjunum reyndu að þagga niður umræðu um málið. Monica Braw er einn kunnasti sérfræðingur Norðurlandanna á þessu sviði. Hún bjó í Japan um árabil og bók hennar Överlevarna hefur komið út á fjölda tungumála.
Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur verður fundarstjóri og Guðmundur Georgsson læknir flytur ávarp, en hann heimsótti Hiroshima og ræddi við fórnarlömb sprengjunnar fyrir tveimur áratugum.
Tónlistarmaðurinn KK tekur lagið og trúbadorinn Ólafur Torfason flytur frumsamið lag við ljóð Eyrúnar Jónsdóttur.
Samkoman er opin öllum friðarsinnum og prýðilegur undirbúningur fyrir kertafleytinguna síðar um kvöldið.
Friðarsinnar á Akureyri ætla einnig að hittast og minnast þessara hörmulegu atburða. Það má lesa nánar um það á www.fridur.is