Archive for August, 2005

Hinar stóru spurningar

Wednesday, August 24th, 2005

Ætli það sé sama lögmál sem ræður því að brauð lendir á marmelaðinu ef það dettur á gólfið og að börn kúka í nýjar og þurrar bleiur?

Garpar og sófakartöflur

Sunday, August 21st, 2005

Hvað er betra að gera á sunnudegi en að hanga á netinu? Á vafri mínu rakst ég á snilldar ferðasögu eftir Huga Þórðarson. Allavega er hún snild fyrir þá sem þekkja eitthvað til svæðisins eða ferðalanganna. Og ég þekki hvoru tveggja svolítið. Verð þó að viðurkenna að mig óraði ekki fyrir því að þeir væru svona miklir garpar.

Var ekki sérlega menningarleg í gær. Fór þó og skoðaði Friðarhúsið. Amma Stefáns borðaði svo kvöldmat hjá okkur og við horfðum saman á sjónvarpið. Það var afbragðsfínt og letilegt. Eftir að amman fór heim að sofa hélt ég áfram að horfa á sjónvarpið.

Það fjölgar enn

Thursday, August 18th, 2005

Alltaf fjölgar þeim sem eru orðnir foreldrar í árgangi ‘77 frá Neskaupstað. Held að þeir barnlausu séu bara jafnvel að komast í minnihluta. Ég óska Úrsúlu og Heimi innilega til hamingju með dótturina.

Hann Daðason í Danaveldi hefur svo aldeilis tekið vaxtakipp og er greinilega hinn mesti myndar pilltur.

Öfundsjúk

Tuesday, August 16th, 2005

Mikið held ég að það sé gott að sofa kappklædd úti í svona veðri og heyra rigninguna og vindinn lemja á vagninum en vera samt sjálfri funheitt. Ég verð að viðurkenna að ég öfunda Ólínu ferlega af þessu…

- - -

Tókst að redda því að ég fékk lyfin mín á föstudaginn og er ekki fjarri því að þau séu að hafa einhver áhrif. Fór allavega í smá göngutúr áðan. Það er framför.

- - -

Það er verið að múra eldhúsið mitt. Það er e.t.v. ekki hægt að segja að framkvæmdirnar gangi hratt en þær mjakast þó. Ég er farin að sjá það í hyllingum að eignast aftur mitt eigið eldhús og á góðum degi tel ég mér trú um að þar verði sífellt verið að elda eða baka eitthvað gómsætt.

Jamm.

Funheitur

Friday, August 12th, 2005

Ólína hefur sýnt það í sumar að hún er heitfeng eins og pabbi sinn. Heitustu dagana í sumar hefur verið vonlaust að láta hana sofa úti í vagni þar sem hún sefur ekki nema í mestalagi í 20 mín og er svo farin að orga. Skiptir þá engu að hún hafi verið láta sofa verulega fáklædd.

Í dag byrjaði ég á því að láta hana út í vagn í þykkri peysu og húfu en með teppi í staðinn fyrir sæng. Eftir nokkrar mínútur fór hún að væla svo ég tók hana úr peysunni. Eins komst ég að því að það er of heitt fyrir hana að hafa svuntuna af vagninum yfir sér. Svo nú sefur daman í innifötum, með húfu á höfðinu og teppi yfir sér ásamt flugnanet.

Ég sjálf trúi því varla að þetta geti verið nóg og er því alltaf að hlaupa út til að þreyfa á höndunum á henni. Og þær eru í hvert skipti jafn funheitar.

* * *

Arg. lyfseðillinn minn í apótekinu á Landsspítalanum er runninn út því ég hef ekki notað hann í meira en ár. Og þá næ ég náttúrulega ekki í lækninn minn. Ekki það að það muni breyta miklu hvort ég byrja að taka lyfin aftur á föstudegi eða mánudegi eftir rúmlega árs pásu. Það versta er að þegar ég byrja að taka þau aftur mun ég örugglega fá aukaverkanirnar aftur sem ég fékk í byrjun. Það hefði því sína kost að byrja að taka þau kvöldið fyrir frídag hjá Stefáni, svona ef ég legst í bælið með flensueinkenni.

Vel heppnuð fleyting og rassaköst

Wednesday, August 10th, 2005

Kertafleytingin í gærkvöldi tókst rosalega vel. Aldrei áður hafa jafn mörg kerti selst og aldrei hefur mætingin verið jafn góð. Mér fanst Páll Óskar standa sig vel sem kynnir, ávarp tengdamóður minnar stór gott og Felix Bergson flutti ljóðið “Klukkurnar í Nagasagi” afburða vel. Veðrið var líka fínt svo þetta hefði hreinlega ekki getað verið betra.

Fundurinn á Ráðhúsinu var líka stórfínn. Erindi Monicu Braw var mjög fróðlegt, eins var Guðmundur Georgsson með sallafínt ávarp. Búddadrengurinn söng svo ljóð eftir hana Eyrúnu búdda alveg afbragðsvel. Þetta var allt svo frábært að mér fannst svosem enginn stór missir í því að KK hafi á síðurstu stnudu boðað forföll.

- - -

Ólína er ekki farin að skríða en mjakar sér hinsvegar um með rassaköstum. Þó aðallega þegar hún er berrössuð. Hún á því til að byrja berrössuð uppi á leikteppi en endar svo úti á köldu parketinu. Enn er hún hinsvegar of lítil og vitlaus til að geta rassakastast upp á hlýtt teppið aftur.

Og nú er hún farin að láta í sér heyra það sem hún liggur úti í vagni. Það er því best að hætta að nördast á netinu og hugsa um barnið.

Kertum fleytt á morgun

Monday, August 8th, 2005

Annað kvöld verður kertum fleytt á Tjörninni í Reykjavík til þess að missast þeirra sem dóu þegar Bandarikjamenn vörpuðu kjarnorkusprengjum á Japönsku borgirnar Hirosima og Nagasagi fyrir 60 árum.

Safnast verður saman við Suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg). Ingibjörg Haraldsdóttir kennari flytur ávarp samstarfshópsins og Felix Bergsson flytur ljóð. Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson. Kerti kosta kr. 400.

Þú mætir auðvitað!

Fyrr um kvöldið verður einnig fundur í Tjarnarsalnum. Dagskrá hans er eftirfarandi:

Í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur verður samkoma sem hefst kl. 20:30.

Þar mun sænski rithöfundurinn og fræðikonan Monica Braw flytja erindi um afleiðingar árásanna, afdrif fólksins sem lifði þær af og hvernig stjórnvöld í Japan og Bandaríkjunum reyndu að þagga niður umræðu um málið. Monica Braw er einn kunnasti sérfræðingur Norðurlandanna á þessu sviði. Hún bjó í Japan um árabil og bók hennar “Överlevarna” hefur komið út á fjölda tungumála.

Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur verður fundarstjóri og Guðmundur Georgsson læknir flytur ávarp, en hann heimsótti Hiroshima og ræddi við fórnarlömb sprengjunnar fyrir tveimur áratugum.

Tónlistarmaðurinn KK tekur lagið og trúbadorinn Ólafur Torfason flytur frumsamið lag við ljóð Eyrúnar Jónsdóttur.

Samkoman er opin öllum friðarsinnum og prýðilegur undirbúningur fyrir kertafleytinguna síðar um kvöldið.

Friðarsinnar á Akureyri ætla einnig að hittast og minnast þessara hörmulegu atburða. Það má lesa nánar um það á www.fridur.is

Bara tvær í framtíðinni

Tuesday, August 2nd, 2005

Stefán fór í vinnuna í morgun og við Ólína erum því bara tvær í kotinu. Þetta á örugglega eftir að vera frekar skrýtið þar sem við höfum meira og minna verið öll þrjú saman síðan hún fæddist. Fyrrihluti þessa fyrsta dags hefur þó verið ósköp notalegur þar sem við erum bara búnar að vera að dunda okkur, borða og sofa - og Ólína sefur reyndar enn.

Verslunarmannahelgin var ósköp ljúf og letileg, þó svo að Ólína hafi náð sér í smá kvef sem aðallega hefur þjakað vinstra augað hennar. Við
fullorðnafólkið fórum í fimmtugsafmæli á föstudagskvöldið en Ólína var í pössun hjá ömmu sinni og afa.

Á Laugardagskvöldið horfði ég á sjónvarpið eins og ég fengi borgað fyrir það meðan Stebbi hékk í tölvunni. Um síðir hafði ég mig þó í að slökkva á sjónvarpinu en hélt áfram að flatmaga í sófanum en með bók í þetta skiptið. Renndi mér í gegnum Bítlaávarpið. -Skemmtileg eins og reyndar bækurnar hans Einars Más eiga það til að vera en endirinn kom mér nokkuð í opna skjöldu.

Sunnudagurinn var góður dagur. Við ætluðum að fara á Jónfrúna og gera
okkur dagamun. Þar var hinsvegar allt lokað og læst og við fórum því að Póstbarinn og fengum bruns. Ólína virtist kunna því ágætlega þó svo að hún fengi ekkert að borða. Síðan kom Bryndís og heimsótti okkur. Ég held að Ólínu muni finnast Bryndís ofsalega skemmtileg!! Og svo komu Skúli og Elvíra um kvöldið.