Go mótmælendur!!

Ég skutlaði mömmu út á flugvöll áðan en hún var að fara austur á Neistaflugið. Ég verð að viðurkenna að mér er bara alveg sama þótt ég missi af Neistafluginu þetta árið.

Mig dauðlangar hinsvegar að Kárahnjúkum. Ef Ólína væri ekki svona lítil sér myndi ég drífa alla fjölskylduna þangað uppeftir. En það verður víst að bíða næsta sumars. Vona bara að mótmælendurnir láti ekki einhverja labbakúta í löggunni slá sig út af laginu heldur hlaði nú bara batteríin og haldi svo mótmælumn sínum ótrauðir áfram.

Mér finnst nú samt að þeir mættu alveg nostra meira við mótmælaborðana sína og spreyanir á veggi og ökutæki. Vel stílíseruð slagorð og fallega máluð eru alltaf mun skemmtilegri en eitthvað ljótt krot.

Þannig er nú það.

Comments are closed.