Við neitum engum matarboðum þessa dagana!!
Lífið er að komast í nokkuð fastar skorður aftur. Við erum búin að taka upp úr ansi mörgum kössum og fötin okkar eru mest öll að verða komin á sinn stað. Það eru þó einhverjir nokkrir pinklar eftir og smá bunki enn í Frostaskjólinu.
Ég held að við séum meira að segja að venjast því að hafa ekkert eldhús. Það er náttúrulega bara snilldarfyrirkomulag að borða aldrei kvöldmat heima, heldur láta foreldra sína bjóða sér endalaust í mat. Ef einhverja fleiri langar að bjóða okkur í mat væri þeim það alveg velkomið. Það þarf ekki einu sinni að drífa sig neitt séstaklega þar sem það er ekki útlit fyrir að við verðum komin með eldhús aftur fyrr en einhverntíma í September!
Draslherbergið stendur þó undir nafni sem aldrei fyrr, enda fullt af kössum þar með dóti sem áður var geymt í eldhúsinu. En svo heppilega vill til að það er nú bara hægt að loka þangað inn. Þegar það er gert lítur íbúðin svosem bærilega út, allavega ef litið er framhjá því að eldhúsið er ekki einu sinni tilbúið undir tréverk.