Klaufi
Einhvernvegin tókst mér að birta færslu gærdagsins á síðunni hans Stefáns. Ég veit ekki alveg hvernig ég fór að því, þar sem ég kann hvorki aðgangsorðið né lykilorð að síðunni. En þar sem mér finnst þetta ágætis færsla, byrti ég hana hér með aftur og núna á réttri síðu.
Ólína farin að blóta
Ólína hélt upp á tveggja mánaða afmælið sitt með því að mæta á sumarblót Ásatrúarfélagsins á Þingvöllum. Hún virtist bara kunna þessu vel og drakk mjólk hin kátasta, alsherjargoðanum til samlætis, þegar hann drakk heill hinna og þessara goða.
Móðirina grunar þó að hefði Ólína sjálf fengið að ráða heill hvers hún hefði drukkið, þá hefði snuddan hennar orðið fyrir valinu. Eða kannski óróinn.
Að ári liðnu verður Ólína kannski orðin nógu stór til að drekka úr blótshorni. Það er þó óvíst hvort foreldrar hennar leyfa henni að bragði á miðinum góða. En það má náttúrulega bara alveg eins drekka mjólk úr horninu. Varla færu goðin nú að reiðast því.