Hvernig var frárennslismálunum í gamla mjólkurbúinu háttað?

Það er hressandi pistill um náttúruvernd á Morgunpóstinum í dag. Ég verð þó að viðurkenna að ég man enganvegin hvernig frárennslismálum gamla mjólkurbúsins í Neskaupstað var háttað. En mér finnst líkingin engu að síður skemmtileg. Kannski er það þó bara vegna þess að það er minnst á heimaslóðirnar.

One Response to “Hvernig var frárennslismálunum í gamla mjólkurbúinu háttað?”

  1. Tóta Says:

    Það var alveg hægt að sá það þegar brúsi hafði oltið óvart, verið var að spúla gólfin eða hella niður undanrennu sem í þá daga þótti ekki nýtanleg nema í kálfa og til skyrgerðar. Affallið var bara eitt stórt rör, sem lá stystu leið til sjávar. Sjórinn neðan við Sæsilfursbryggjuna varð hvítur nokkra stund. Skil samt ekki alveg samlíkinguna við Jöklu - en tilvitnun í heimahagana alltaf skemmtileg.

    Skilaðu kveðju til mömmu þinnar - Tóta frá Kirkjumel.