Smá um Ólínu
Þar sem ég hef ekkert bloggað um Ólínu ætla ég að gera það svolítið núna:
En við Ólína skeltum okkur á kaffihús í dag og sátum úti og nutum sólarinnar. Eða ég sat allavega og naut sólarinnar. Ólína lá hinsvega og svitnaði í vagninum sínum. Barnið virðist vera heitfengt eins og pabbi sinn og ég er að verða pínulítið hrædd um að hún muni hatast við hita eins og hann.
Af Ólínu er það annars að frétta að hún hefur eignast trúnaðarvin. Vinur þessi er órói sem hangir í vöggunni hennar. Það er með ólíkindum hvað barnið getur unað sér lengi í hörkusamræðum við þennan nýja félaga og það er greinilegt að hún er strax farin að æfa sig að tala til þess að komast örugglega að fyrir foreldrum sínum.
June 22nd, 2005 at 11:03 pm
Freyja er eins. Það er ótrúlegt hvað hún getur dundað sér að spjalla við Klöru kolkrabba og þau hin í óróanum.
June 23rd, 2005 at 11:55 pm
Gojj goj