Músarhjarta

Stefán og Ólína eru í gönguferð í góðaveðrinu. Á meðan er meiningin að ég liggi með tærnar upp í loft og slappi af. Það væri til dæmis ekki amalegt að skella sér út í sólbað með bók. Ef ég geri það held ég samt að ég verði fyrst að fara í gegnum bókahillur tengdaforeldra minna og finna mér nýtt lesefni.

Ég byrjaði nefnilega að lesa Svartur á leik eftir Stefán Mána en hef komist af því að ég hef ekki nógu sterkan maga og of mikið músarhjarta til þess að treysta mér til að halda áfram. Að öðru leyti er mér búið að finnast bókin ágætlega áhugaverð.

- - -

Áðan stökk ég inn í búð á Laugarveginum. Á meðan keyrðu Stefán og Ólína smá hring. Meðan ég beið svo fyrir utan búðina eftir því að þau sæktu mig aftur tók ég eftir nokkru merkilegu: Í stórum hluta þeirra bíla sem keyrðu framhjá voru miðaldra karlmenn undir stýri og þeir voru einir í bílnum.

Ég hafði ekki alveg átt von á því að það væri sá hópur sem væri á rúntinum um kl. hálf tvö á fimmtudegi. En svona er Ísland í dag.

- - -

Í gær hélt ég við fyrstu sýn að Elísabet Jökulsdóttir væri á forsíðunni á Fréttablaðinu…

4 Responses to “Músarhjarta”

  1. Þorbjörn Says:

    Mæli með að þú haldir áfram með Stéfan Mána.

  2. helga Björnsdóttir Says:

    Elísabet á forsíðu Fréttablaðsins? Ertu eitthvað verri kona? Ekki nema hún hafi verið að kynna eldamennsku sína eða sýna fatnað. Á forsíðuna fara nær eingöngu þeir sem eru einir á rúntinum kl. hálf tvö á fimmtudegi.

  3. helga Björnsdóttir Says:

    Elísabet á forsíðu Fréttablaðsins? Ertu eitthvað verri kona? Ekki nema hún hafi verið að kynna eldamennsku sína eða sýna fatnað. Á forsíðuna fara nær eingöngu þeir sem eru einir á rúntinum kl. hálf tvö á fimmtudegi.

  4. Ég sjálf Says:

    …og konur sem sleppa úr gíslingu í Írak og svipar svolítið til Elísabetar.