google
yahoo
bing

Archive for June, 2005

Við neitum engum matarboðum þessa dagana!!

Thursday, June 30th, 2005

Lífið er að komast í nokkuð fastar skorður aftur. Við erum búin að taka upp úr ansi mörgum kössum og fötin okkar eru mest öll að verða komin á sinn stað. Það eru þó einhverjir nokkrir pinklar eftir og smá bunki enn í Frostaskjólinu.

Ég held að við séum meira að segja að venjast því að hafa ekkert eldhús. Það er náttúrulega bara snilldarfyrirkomulag að borða aldrei kvöldmat heima, heldur láta foreldra sína bjóða sér endalaust í mat. Ef einhverja fleiri langar að bjóða okkur í mat væri þeim það alveg velkomið. Það þarf ekki einu sinni að drífa sig neitt séstaklega þar sem það er ekki útlit fyrir að við verðum komin með eldhús aftur fyrr en einhverntíma í September!

Draslherbergið stendur þó undir nafni sem aldrei fyrr, enda fullt af kössum þar með dóti sem áður var geymt í eldhúsinu. En svo heppilega vill til að það er nú bara hægt að loka þangað inn. Þegar það er gert lítur íbúðin svosem bærilega út, allavega ef litið er framhjá því að eldhúsið er ekki einu sinni tilbúið undir tréverk.

Hvernig var frárennslismálunum í gamla mjólkurbúinu háttað?

Friday, June 24th, 2005

Það er hressandi pistill um náttúruvernd á Morgunpóstinum í dag. Ég verð þó að viðurkenna að ég man enganvegin hvernig frárennslismálum gamla mjólkurbúsins í Neskaupstað var háttað. En mér finnst líkingin engu að síður skemmtileg. Kannski er það þó bara vegna þess að það er minnst á heimaslóðirnar.

Klaufi

Friday, June 24th, 2005

Einhvernvegin tókst mér að birta færslu gærdagsins á síðunni hans Stefáns. Ég veit ekki alveg hvernig ég fór að því, þar sem ég kann hvorki aðgangsorðið né lykilorð að síðunni. En þar sem mér finnst þetta ágætis færsla, byrti ég hana hér með aftur og núna á réttri síðu.

Ólína farin að blóta

Ólína hélt upp á tveggja mánaða afmælið sitt með því að mæta á sumarblót Ásatrúarfélagsins á Þingvöllum. Hún virtist bara kunna þessu vel og drakk mjólk hin kátasta, alsherjargoðanum til samlætis, þegar hann drakk heill hinna og þessara goða.

Móðirina grunar þó að hefði Ólína sjálf fengið að ráða heill hvers hún hefði drukkið, þá hefði snuddan hennar orðið fyrir valinu. Eða kannski óróinn.

Að ári liðnu verður Ólína kannski orðin nógu stór til að drekka úr blótshorni. Það er þó óvíst hvort foreldrar hennar leyfa henni að bragði á miðinum góða. En það má náttúrulega bara alveg eins drekka mjólk úr horninu. Varla færu goðin nú að reiðast því.

Smá um Ólínu

Wednesday, June 22nd, 2005

Þar sem ég hef ekkert bloggað um Ólínu ætla ég að gera það svolítið núna:

En við Ólína skeltum okkur á kaffihús í dag og sátum úti og nutum sólarinnar. Eða ég sat allavega og naut sólarinnar. Ólína lá hinsvega og svitnaði í vagninum sínum. Barnið virðist vera heitfengt eins og pabbi sinn og ég er að verða pínulítið hrædd um að hún muni hatast við hita eins og hann.

Af Ólínu er það annars að frétta að hún hefur eignast trúnaðarvin. Vinur þessi er órói sem hangir í vöggunni hennar. Það er með ólíkindum hvað barnið getur unað sér lengi í hörkusamræðum við þennan nýja félaga og það er greinilegt að hún er strax farin að æfa sig að tala til þess að komast örugglega að fyrir foreldrum sínum.

Músarhjarta

Thursday, June 16th, 2005

Stefán og Ólína eru í gönguferð í góðaveðrinu. Á meðan er meiningin að ég liggi með tærnar upp í loft og slappi af. Það væri til dæmis ekki amalegt að skella sér út í sólbað með bók. Ef ég geri það held ég samt að ég verði fyrst að fara í gegnum bókahillur tengdaforeldra minna og finna mér nýtt lesefni.

Ég byrjaði nefnilega að lesa Svartur á leik eftir Stefán Mána en hef komist af því að ég hef ekki nógu sterkan maga og of mikið músarhjarta til þess að treysta mér til að halda áfram. Að öðru leyti er mér búið að finnast bókin ágætlega áhugaverð.

- - -

Áðan stökk ég inn í búð á Laugarveginum. Á meðan keyrðu Stefán og Ólína smá hring. Meðan ég beið svo fyrir utan búðina eftir því að þau sæktu mig aftur tók ég eftir nokkru merkilegu: Í stórum hluta þeirra bíla sem keyrðu framhjá voru miðaldra karlmenn undir stýri og þeir voru einir í bílnum.

Ég hafði ekki alveg átt von á því að það væri sá hópur sem væri á rúntinum um kl. hálf tvö á fimmtudegi. En svona er Ísland í dag.

- - -

Í gær hélt ég við fyrstu sýn að Elísabet Jökulsdóttir væri á forsíðunni á Fréttablaðinu…