Ekkert í gangi og smá um ís

Þá er komin 22.apríl og ég hef það bara ljómandi gott. Og fyrir þau ykkar sem ekki eruð þegar búin að spyrja þá er ekkert að gerast!!

* * *

Síðust daga hef ég verið óvenju framúrstefnuleg og hef tvisvar borðað ís úr annari ísbúð en þeirri á Hagamelnum. Fyrst fékk ég mér lítinn ís í boxi hjá Herberti Guðmundssyni. Það mun ég ekki gera aftur í bráð. Í gær var sumarkomu svo fagnað með kúluís á Ís Café. Hann var ljómandi góður og ég á ábyggilega eftir að borða fleiri ísa þaðan áður en sumarið er á enda.

3 Responses to “Ekkert í gangi og smá um ís”

  1. Vigdís Says:

    ef þig vantar félagsskap til að koma í ísferð þá er ég alltaf til! Því enginn situr einn að ís! ;)

  2. Óli Njáll Says:

    Hvað var að ísnum frá Hebba? Hann er sá besti í bænum að mínu mati.

  3. Vigdís Says:

    Ertu bara alveg hætt að blogga? Fussumsvei ef þú ert of þreytt til að skrifa línu þá er Stefán ekki að standa sig :P