Laugardagsverkin

Fórum í Bónus og gerðum stórinnkaup um hádegisbilið í dag. Eftir hverja svona Bónusferð tölum við um að við verðum að vera duglegri við að gera svona hagkvæm matarinnkaup en svo verður aldrei neitt almennilegt úr því og við verslum eins og við fáum borgað fyrir það í Nóatúni eða 10-11. Eftir Bónus fórum við í Rúmfatalagerinn og héldum hinum hagkvæmu innkaupum áfram.

Klukkan tvö skiptum við hinsvegar liði. Stefán fór á fyrirlestur um
afstæðiskenningu Einsteins en ég fór á Laugardagsfund VGR þar sem Steinþór Heiðarsson og Halla Gunnarsdóttir fjölluðu um Íran. Það var ljómandi skemmtilegur og vel heppnaður fundur.

Veit ekki hvernig restinni af deginum skal eytt en mér finnst ís át koma sterklega til greina.

Comments are closed.