Kjötsúpa
Í gær bauð mamma í kjötsúpu. Mér finnst kjötsúpa góð.
Það er skömm að segja frá því en ég hef aldrei eldað kjötsúpu. Hef þó oft látið útskýra fyrir mér hvernig það er gert. Nú held ég að ég fari að taka mér tak og setji mér það markmið að vera búin að prufa að elda kjötsúpu áður en haustið kemur.