Til hamingju með heilladaginn þinn…
…æ ég kann ekki meira. Þú verður bara að syngja fyrir þig sjálf.
Afmælisbarn dagsins er frú Jóhanna. Ef ég man rétt er hún svo á leiðinni til Ítalíu á morgun. Ég óska henni því til hamingju með daginn og góðrar ferðar. Það á þó líklega ekki eftir að liggja fyrir henni í þessari ferð að upplifa það að vera sveittur ferðamaður þar sem hitinn í Mílanó virðist ekki vera nema 7 gráður. En megi ferðin verða hin ánægjulegasta þrátt fyrir það.
April 13th, 2005 at 1:22 pm
Takk fyrir mig - já ég syng inni í mér og verð með lagið á heilanum það sem eftir er dagsins - sem er gott - þetta er skemmtilegt lag. Varðandi hitann þá bara vona ég að hann hífist aðeins upp bara því ég ætla sko ekki að fara með hlýju stóru úlpuna mína með.
April 13th, 2005 at 2:03 pm
Hei! - það var 17 C°hiti á hádegi í Mílanó í dag - þannig að - ekkert svona!
April 13th, 2005 at 4:10 pm
Þú hefur greinilega fundið skemmtilegri hitatölur en ég. En ég vona svo sannarlega að þú eigir eftir að fá svolítinn hita og ekta vor veður.