Kann einhver á Electrolux þurkara?

Í tilefni að þrítugs afmæli Stefáns buðu foreldrar hans okkur, mömmu og systkynum mínum á Grillið á Hótel Sögu. Þar fengum við einn þann besta mat sem ég hef á æfinni smakkað. Ég hafði aldrei áður borðað á Grillinu og hafði hreinlega ekki komið þarna upp. Útsýnið yfir borgina er mjög flott þarna uppi og að flestu leyti fannst mér það nú bara flottara en útsýnið úr Perlunni. Takk tengdó fyrir yndislega kvöldstund!!

* * *

Systir mín bauð mér núna áðan á frumsýningu á myndinni Þröng sýn. Ég get ekki linkað en það má lesa nánar um myndina á slóðinni http://www.icelandfilmfestival.is/myndir/island/#ThRONG_SYN_
Þetta var allt saman mjög framúrstefnulegt og ég er ekki alveg viss um að ég hafi alveg náð að meðtaka boðskap myndarinnar enda ekki vel að mér í heimi tilrauna hreyfimynda. Það var samt mjög gaman að fá tækifæri til að sjá loks þessa mynd sem ég er búin að heyra ýmislegt af í svo langan tíma en hef aldrei botnað upp né niður í. Semsagt örugglega alveg rosalega listrænt!

* * *

Mamma lánaði okkur þurkarann sinn. Það er bara verst að notkunarleiðbeiningarnar með honum hafa ekki komið í leitirnar og enginn í fjölskyldunni man almennilega hvernig hann virkar. Ég er engu að síður að gera tilraun með að þurka bleyjur í honum núna og er svolítið á tauginni yfir því að ég kveiki í húsinu eða eitthvað. Er einhver þarna úti sem á leiðbeiningar að Electrolux WT255 þurkara eða kann á stillingarnar á honum? Öll ráð væru allavega óskaplega vel þegin.

5 Responses to “Kann einhver á Electrolux þurkara?”

  1. Jóhanna Says:

    Eru þurrkarar ekki einföldustu rafmagnstækin - bara snýrð einum takka doldið (oft mertktar mínútur í kringum takkann) og svo fer hann af stað?

  2. Ég sjalf Says:

    Jú en það er sýnist mér hægt að stilla hann þannig en svo er líka hægt að gera eitthvað öðruvísi sem ég held að hafi með hitann sem hann þurkar á að gera. Er svolítið hrædd um að fötin skreppi saman ef hitastillingin er vitlaus.

  3. Hel Says:

    þurkarar fara alltaf illa með föt no matter what, var á timabili með aðgang að þurrkara og mörg glæsileg barnafötin urðu ekki söm.

  4. fífa Says:

    mér hefði fundist fyndið að segja: öll ráð væru afskaplega vel þvegin…

  5. Bergljót Njóla Says:

    Fara á gulu síðurnar í símskránni og netinu og komast að því hver er með umboðið og selur þessi undratæki og fá sent/eða sækja leiðbeiningar frá svipuðum þurrkara?

    Hm?