Afmælisblogg

Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli hann Stefán
Hann á afmæli í dag

Húrra

* * *

Afmælistónleikarnir í gærkvöldi, til heiðurs Megasi sextugum voru snilldin ein. Við Stefán vorum eftir tónleikana sammála um að Tarbant og 5ta herdeildin hefðu verið með bestu atriðin. Einnig fannst mér túlkun Súkkat á Litlum sætum strákum skemmtileg. Pálmi Gunnarsson og Valgeir Guðjónsson komu mér svo einna mest á óvart en svona fyrirfram hafði ég einna síst átt von á því að þeir myndu heilla mig.

Ég var á tímabili, undir lok tónleikanna, farin að hafa smá áhyggjur af því að barnið myndi bara fara að brjótaast út úr maganum á mér en það hamaðist mikið og allskonar stingir og verkir fylgdu því. Það róaðist þó allt að tónleikunum loknum.

Ég vona bara að þetta hafi verið til merkis um það að ég gangi með lítinn Megasar aðdáenda en ekki að barnið hefi viljað flýja öll ósköpin.

2 Responses to “Afmælisblogg”

  1. Sv1 Says:

    Til hamingju með karlinn.

  2. Auður Lilja Says:

    já vonandi verður manni forðað frá því að ala upp Birgittu aðdáanda nr. 1. Mikið yrði maður vansæll svona til lengdar.