Leti
Mikil bloggleti hefur hrjáð mig að undanförnu. Oft hafa mér dottið í hug allskonar hlutir til að skrifa um en ég hef bara engan veginn nennt að setjast við tölvuna til að koma þeim frá mér. Nú virðist bloggletin hinsvegar hafa vikið - allavega um stundarsakir - en alvarleg lærdómsleti gripið um sig í staðinn.
Í morgun er ég semsagt búin að finna mér allskonar hluti til dundurs aðra en að læra. Ég er þó enn sem komið er búin að geta haldið mér frá því að fara að vaska upp. Kannski ég vaski bara upp núna og athugi hvort það komi mér í lærdómsgírinn…