Eftirfarandi frétt birtist á ruv.is fyrir nokkrum dögum:
Bandaríkin: Námsmannahreyfing gegn Coca Cola
Öflug námsmannahreyfing er sprottinn upp í Bandaríkjunum gegn Coca Cola, bæði ætlaðri aðild fyrirtækisins að mannréttindabrotum í þróunarríkjum og óhollustu drykkjarins. Tímaritið Nation segir frá þessu. Þannig hafa nemendasamtök komið því til leiðar að sex háskólar hafa ýmist sagt upp samningum við Coke eða fjarlægt sjálfsala fyrirtækisins úr byggingum skólanna. Þá hafa nemendur New York háskóla samþykkt að hunsa Coca Cola og nemendur við Rudgersháskóla í New Jersey krefjast þess að stjórn skólans segi upp 10 milljón dollara samningi við fyrirtækið. Nemendur Michican háskóla hafa sett fram svipaða kröfu, segja hætt við að tengsl skólans við Coca Cola dragi úr trúverðugleika nýsamþykktrar mannréttindastefnuskrár hans.
Hreyfingin spratt upp eftir ákall frá verkalýðsfélögum í Kólumbíu. Þau staðhæfa að Coke hafi fengið dauðasveitir hægri manna til að myrða 8 verkamenn undanfarin ár, allt baráttumenn fyrir aðild verkafólks að stéttarsamtökum. Þá sakar námsmannahreyfingin Coca Cola um umhverfisspjöll á Indlandi, barnaþrælkun í El Salvador og að brjóta rétt á alnæmissmituðu verkafólki í Suður-Afríku. Námsmannahreyfingin gegn Coca Cola hefur náð út fyrir Bandaríkin. Þannig hafa nemendur þriggja háskóla á Írlandi, eins á Ítalíu og eins í Kanada samþykkt að sniðganga Coca Cola.
Það væri óskandi að Stúdentaráð HÍ tæki sér þessar námsmannahreyfingar til fyrirmyndar og losaði okkur við allar vörur Coca Cola Company úr Háskólanum.