Archive for March, 2005

Annir

Monday, March 7th, 2005

Annasöm helgi er að baki. Við tekur annasöm vika. Þó er morgundagurinn sérdeilis annasamur. Þá er 8.mars, alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Annað kvöld stendur til að stofna kvennahreyfingu innan ÖBÍ. Í tilefni dagsins og í tilefni stofnunar kvennahreyfingarinnar mun ég flytja erindi í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 17:00 og svo aftur hjá ÖBÍ kl. 20:00. Erindið er nálega tilbúið. Smávægilegar fíniseringar eftir.

* * *

Mér skilst að Sverrir muni snæða með okkur kvöldmat. Það verður sérdeilis spennandi að sjá hvað hann og Stefán munu draga með sér heim í matinn.

Munkur

Thursday, March 3rd, 2005

Í gær sá ég munk. Hann var í brúnum kufli, með stóran kross um hálsinn og skeggjaður. Eiginlega svolítið eins og hann hefði stokkið út úr Í nafni Rósarinnar. Ég veit samt ekki hvort hann var alvöru. Allavega hef ég aldrei áður séð svona kristinn munk á Íslandi. Ég sá heldur ekki hvort hann væri með svona skallablett í hnakkanum. Svo var líka svolítið sérstakt að rekast á hann í tölvu og ritfangabúð. -En af hverju ættu svosem munkar ekki að þurfa að kaupa pappír í prentarann sinn eins og annað fólk.

Allavega þá fannst mér þetta áhugavert. Kannski er það bara merki um að ég lifi of fábrotnu lífi.

* * *

Annars líst mér vel á hugmynd sambýlismanns míns um að hafa grjónagraut og slátur í kvöldmatinn. Ætli það verði ekki hreinlega bara ofaná.