Fjölmennum á Ingólfstorg
Um helgina verða tvö ár liðin frá því að ólöglegt árásarstríð Bandaríkjastjórnar og bandalagsríkja hennar í Írak hófst. Um allan heim efna andstæðingar stríðsreksturs og vígvæðingar til aðgerða að þessu tilefni undir slagorðinu Stop the War eða Höfnum stríði! Hér á landi verður efnt til aðgerða í Reykjavík og á Akureyri.
Í Reykjavík taka friðarsinnar daginn snemma. Opið hús með kaffiveitingum verður í MÍR-salnum við Vatnsstíg frá kl. 12, en safnast verður saman á Ingólfstorgi kl. 14. Þar verður stutt dagskrá, en að öðru leyti verða aðgerðirnar fyrst og fremst táknrænar þar sem athyglinni verður beint að þeim tugþúsundum sem látið hafa lífið vegna stríðsins og áréttuð krafan um að hernáminu í Írak ljúki tafarlaust, írösku þjóðinni verði falin stjórn eigin mála og refsað verði fyrir þá stríðsglæpi sem framdir hafa verið.
Það liggur sem sagt alveg fyrir hvernig morgundeginum verður varið. Vona að ALLIR muni svo verja honum með svipuðum hætti og ég.
