Afkastamikill dagur í dag, ja og líka gærdagurinn

Það er svo hrikalega gaman þegar manni finnst dagsverkið vera gott. Og það finnst mér svo sannarlega í dag. Ekki nóg með að ég sé búin að skrifa eitt greiningarblað og leggja grunninn að öðru, heldur fórum við einnig í IKEA í morgun og fjárfestum í kommóðu. Nú er svo bara að bretta upp á ermarnar og fara að þvo og ganga frá barnafötum.

* * *

Í gær fengum við góða gesti en þá kíktu Jóhanna og Helgi Gnýr í heimsókn. Helgi lék sér með Strumpa en Jóhanna var dregin í nælu ísetningu í barmmerki. Ég var fyrst með smá samviskubit yfir að fara svona með gestinn en þar sem Jóhönnu fannst þetta greinilega bara mjög skemmtilegt get ég ekki verið annað en ánægð með að hafa fengið aðstoð frá henni. Vegna þess hve hún er liðtæk í akkorðsvinnu voru það ekki nema 300 nælur sem við Stefán þurftum að setja á sinn stað í dag. Og Jóhönnu til fróðleiks er sendingin farin af stað vestur á Ísafjörð, talsvert fyrr en við höfðum þorað að vona.

Kannski við hóum bara í þau mæðgin næst þegar rumpa þarf af verkefni.

2 Responses to “Afkastamikill dagur í dag, ja og líka gærdagurinn”

  1. Jóhanna Says:

    Það stendur ekki á mér - endilega kallið í mig!

  2. Dagbjort Says:

    Bidid bara tangad til hun fer ad kenna ykkur “hennar adferd”.