Annir
Annasöm helgi er að baki. Við tekur annasöm vika. Þó er morgundagurinn sérdeilis annasamur. Þá er 8.mars, alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Annað kvöld stendur til að stofna kvennahreyfingu innan ÖBÍ. Í tilefni dagsins og í tilefni stofnunar kvennahreyfingarinnar mun ég flytja erindi í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 17:00 og svo aftur hjá ÖBÍ kl. 20:00. Erindið er nálega tilbúið. Smávægilegar fíniseringar eftir.
* * *
Mér skilst að Sverrir muni snæða með okkur kvöldmat. Það verður sérdeilis spennandi að sjá hvað hann og Stefán munu draga með sér heim í matinn.
March 7th, 2005 at 10:48 pm
Vá ég fékk bara á tilfinninguna eins og þú værir uppi í afdölum eða í afskekktum firði þar sem þú situr heima og bíður eftir að maðurinn beri björg í bú - björgin verandi e-ð af gæðum landsins!
March 8th, 2005 at 8:23 am
Sendi þér baráttukveðjur á baráttudegi kvenna 8.mars. Kemst því miður ekki til að hlusta á þig í Ráðhúsinu þar sem vinnudegi mínum er ekki lokið klukkan 17. Yfirskrift ávarpsins þíns hljómar svo stærðfræðilega að ég hefði svo gjarnan viljað koma (!) Og ég veit líka að þú rúllar þessu upp.