Munkur
Í gær sá ég munk. Hann var í brúnum kufli, með stóran kross um hálsinn og skeggjaður. Eiginlega svolítið eins og hann hefði stokkið út úr Í nafni Rósarinnar. Ég veit samt ekki hvort hann var alvöru. Allavega hef ég aldrei áður séð svona kristinn munk á Íslandi. Ég sá heldur ekki hvort hann væri með svona skallablett í hnakkanum. Svo var líka svolítið sérstakt að rekast á hann í tölvu og ritfangabúð. -En af hverju ættu svosem munkar ekki að þurfa að kaupa pappír í prentarann sinn eins og annað fólk.
Allavega þá fannst mér þetta áhugavert. Kannski er það bara merki um að ég lifi of fábrotnu lífi.
* * *
Annars líst mér vel á hugmynd sambýlismanns míns um að hafa grjónagraut og slátur í kvöldmatinn. Ætli það verði ekki hreinlega bara ofaná.
March 4th, 2005 at 5:32 pm
Grjónagrautur og munkar, ekkert fábrotvið við það…
March 4th, 2005 at 5:33 pm
Grjónagrautur og munkar ekkert fábrotið við það…
March 6th, 2005 at 2:04 am
hey! ég sá þennan munk líka! skeggjaður dúd, mig langaði rosalega að tala við hann, en náði því ekki, var einmitt lika að velta fyrir mér hvort hann væri alvöru munkur.
Þetta er óleyst ráðgáta…