Archive for March, 2005

Tiltektardagurinn mikli

Thursday, March 24th, 2005

Deginum í dag hefur verið eytt í tiltekt. Fyrst var mokað út úr geymslunni og svo ráðist í að gera aukaherbergið að mannabústað. Ég er hreinlega ekki fjarri því að þarna verði bráðum komið fyrirtaks gestaherbergi á ný, ásamt vinnuaðstöðu.

Það er annars með ólíkindum hversu mikið drasl safnast fyrir hjá manni en í dag var farið með þrjá stóra bílfarma á Sorpu. Samt má enn tína ýmislegt smálegt til sem líklega endar þar áður en páskafríinu líkur.

Við erum líka langt komin með að raða bókaforða heimilisins upp á nýtt. Hingað til virðast allir hafa haldið að það sé bara Stefán sem eigi fræðibækur í þessari fjölskyldu. Og reyndar á hann nú svolítið fleiri en ég. Ég á þó einnig talsverðan slatta og í dag fengu mínar bækur loks uppreysn æru en þær höfðu lent á mjög asnalegum stað þegar Stebbi flutti á Mánagötuna og höfðu bara húkt þar í kremju. Nú eru þær hinsvegar komnar á prime stað í bókahillu, sem hlýtur að vera svona menningarheimili til mikils framdráttar…enda fjalla þær nú margar hverjar einmitt um menningu.

Á morgun verður tiltekt haldið áfram. Ég veit ekki hvort þetta hefur eitthvað með innbyggt eðli að gera eða hvort draslið var einfaldlega bara orðið of yfirþyrmandi en mér finnst þetta hreinlega bara talsvert mikið stuð.

Fólk á ferð og flugi

Wednesday, March 23rd, 2005

Systkyni mín eru nú á leiðina í sveitasæluna til ömmu. Þau munu semsagt eyða páskunum á Bjargi í Miðfirði. Vona þó að þau hagi sér betur en sumir fyrri ábúendurnir þar.
Ég mun sem sagt ekki þurfa að hafa neitt fyrir þeim þessa helgina. Fréttir af mömmu herma annars að hún hafi það gott í Rússlandi en að þar sé svolítið kalt. Við hjónaleysin ætlum hinsvegar að eyða páskunum sjálfum heima hjá okkur við tiltekt og annað heimilislegt stúss. Eftir helgina er stefnan hinsvegar tekin út úr bænum og þá á algjört letilíf.

Fjölmennum á Ingólfstorg

Friday, March 18th, 2005

19.3.2005 - HÖFNUM STRÍÐI!

Um helgina verða tvö ár liðin frá því að ólöglegt árásarstríð Bandaríkjastjórnar og bandalagsríkja hennar í Írak hófst. Um allan heim efna andstæðingar stríðsreksturs og vígvæðingar til aðgerða að þessu tilefni undir slagorðinu “Stop the War” eða “Höfnum stríði!” Hér á landi verður efnt til aðgerða í Reykjavík og á Akureyri.

Í Reykjavík taka friðarsinnar daginn snemma. Opið hús með kaffiveitingum verður í MÍR-salnum við Vatnsstíg frá kl. 12, en safnast verður saman á Ingólfstorgi kl. 14. Þar verður stutt dagskrá, en að öðru leyti verða aðgerðirnar fyrst og fremst táknrænar þar sem athyglinni verður beint að þeim tugþúsundum sem látið hafa lífið vegna stríðsins og áréttuð krafan um að hernáminu í Írak ljúki tafarlaust, írösku þjóðinni verði falin stjórn eigin mála og refsað verði fyrir þá stríðsglæpi sem framdir hafa verið.

Það liggur sem sagt alveg fyrir hvernig morgundeginum verður varið. Vona að ALLIR muni svo verja honum með svipuðum hætti og ég.

Vinnusamt heimili

Tuesday, March 15th, 2005

Ætli ég taki mig bara ekki til og lími límmiða á rúmlega 100 umslög sem urðu óvart eftir í gærkvöldi, merkjagerð Stefáns til samlætis.

19.3.2005 - HÖFNUM STRÍÐI!

Þeir sem einhverra hluta vegna vilja síður drekka kaffi með Stebba geta því drukkið það með mér.

Afkastamikill dagur í dag, ja og líka gærdagurinn

Monday, March 14th, 2005

Það er svo hrikalega gaman þegar manni finnst dagsverkið vera gott. Og það finnst mér svo sannarlega í dag. Ekki nóg með að ég sé búin að skrifa eitt greiningarblað og leggja grunninn að öðru, heldur fórum við einnig í IKEA í morgun og fjárfestum í kommóðu. Nú er svo bara að bretta upp á ermarnar og fara að þvo og ganga frá barnafötum.

* * *

Í gær fengum við góða gesti en þá kíktu Jóhanna og Helgi Gnýr í heimsókn. Helgi lék sér með Strumpa en Jóhanna var dregin í nælu ísetningu í barmmerki. Ég var fyrst með smá samviskubit yfir að fara svona með gestinn en þar sem Jóhönnu fannst þetta greinilega bara mjög skemmtilegt get ég ekki verið annað en ánægð með að hafa fengið aðstoð frá henni. Vegna þess hve hún er liðtæk í akkorðsvinnu voru það ekki nema 300 nælur sem við Stefán þurftum að setja á sinn stað í dag. Og Jóhönnu til fróðleiks er sendingin farin af stað vestur á Ísafjörð, talsvert fyrr en við höfðum þorað að vona.

Kannski við hóum bara í þau mæðgin næst þegar rumpa þarf af verkefni.

Vefsetur í fötlunarfræðum

Saturday, March 12th, 2005

Í gær var ég viðstödd opnun vefseturs í fötlunarfræðum í Norrænahúsinu. Þegar ég kom heim fór ég auðvitað beint á netið og skoðaði vefinn. Mér líst bara ágætlega á hann og held bara að ég eigi jafnvel eftir að nota hann talsvert í framtíðinni.

Höfnum stríði

Friday, March 11th, 2005

19.3.2005 - HÖFNUM STRÍÐI!

Ooo - þetta er ekki töffaralegt!

Thursday, March 10th, 2005
…en kannski er ég enginn töffari.


You Are Not Scary
Not Scary!
Everyone loves you. Isn’t that sweet?
How scary are you?

Syndandi sími

Wednesday, March 9th, 2005

Í gær sannaðist hversu vel Stefán valdi þegar hann fjárfesti í síma handa mér í afmælisgjöf. En síminn er sér í lagi höggþolinn og gæti líklega staðið af sé miklar náttúruhamfarir. Allavega kveinkaði hann sér ekki hið minnst þó svo að hann skylli í jörðina og skoppaði þaðan út í manngerðu tjörnina við innganginn að Ráðhúsinu síðdegis í gær.

Ég veiddi hann bara upp eins og fín kona og þurkaði bleytuna af með smá klósettpappír og lífið hélt áfram sinn vanagang eins og ekki hefði legið nærri stórslysi.

Til hamingju með daginn!

Tuesday, March 8th, 2005

…ég rétt náði því ;o)

Það gekk bara vel að stofna kvennahreyfingu ÖBÍ. Salur í Hátúninu var smekkfullur og það varð að ræsa út húsvörðinn til að grafa upp fleiri stóla. Flest ávörpin voru bara fín og til fyrirmyndar.

En úff hvað ég er þreytt eftir daginn. Hafði þó aldrei þessu vant vit á að vera í sjúkrasokkum. Annars væri ég líklega að reyna að höggva af mér fæturna núna.

Er meira að segja of þreytt til að rölta til Júlla út í Draum eftir Sódavatni. Vona bara að Stefán verði svo elskulegur að koma við í sjoppu fyrir mig á heimleiðinni úr boltanum.

Svo er stefnan tekin á að skríða fljótlega upp í rúm og sofa bara þar til ég vakna aftur af sjálfsdáðum. Engin vekjaraklukka verður semsagt stillt í kvöld.