Kvennakaffi og gönguferð
Það er órtúlegt hvað gönguferð og gott bað geta gert mikið til að laga bakverki!
* * *
Kvennakaffi VG, sem haldið var í fyrsta sinn í dag, tókst bara vel. Þar sagði mæt kona að hún væri til í að samþykkja það að konur þyrftu ekki lengur að hittast og ræða mál sín sérstaklega þegar tvö mál væru komin í lag.
Það væri þegar búið væri að útrýma kynbundnum launamun og þegar kynferðisofbeldi gagnvart konum fyrirfyndist ekki lengur. Þetta finnst mér ágætis þumalputtaregla sem miða má við og á því síður von á að mikið framhald verði á sérstöku kvennakaffi á vegum VG…
…mér finnst ég nú alveg mega vera svolítið bjartsýn suma daga.