Ís á leiðinni

Ég eyddi talsverðum tíma í dag í að taka til í pósthólfinu mínu. Og ekki var vanþörf á því. Bjó til fullt af fínum möppum og er komin ansi langt með koma skikki á alla skeytasúpuna. Er líka búin að eyða ógrynin af pósti sem einhvernvegin hefur náð að safnast upp engum til gagns eða ánægju.

* * *

Óli Jó kom í kvöldmat til okkar. Að því tilefni var splæst í sesam-bleikju frá Fylgifiskum. Ekki amalegt það. Húsbóndinn og Óli eru nú í leiðangri vestur í bæ eftir ís hana okkur. Það verður mikið gaman þegar þeir skila sér aftur í hús.

One Response to “Ís á leiðinni”

  1. Ingibjörg Says:

    Nú varstu heppin að vera ekki búin með ískvóta vikunnar. Það er ekki svo vitlaust að skilgreina að allur ís sem er ekki úr þessarri ísbúð sé utan kvóta!