Tryggingastofnun sökkar II

Það virðist ekki vera neitt sem viðkemur Tryggingastofnum sem er einfalt. Nú erum við semsagt að reyna að fylla út fæðingarorlofs pappírana. Við töltum niður í TR í morgun og ræddum við þjónustufulltrúa. Reynsla mín af stofnuninni er nefnilega sú að ef maður ræðir við þá augliti til auglits eru minni líkur á að þeir segi manni einhverja vitleysu án þess að maður fatti það. Með þessari aðferð gátum við líka bæði heyrt svörin - en það er erfiðara þegar mál eru afgreidd í gegnum síma.

Mér fannst eins og þjónustufulltrúanum hafi fundist allar spurningar okkar kjánalegar. Og mér fannst öll svörin sem hún gaf okkur ansi loðin. Mér er sem sagt ekki skemmt.

Comments are closed.