Verkkvíði

Síðustu daga hef ég verið haldin miklum verkkvíða og ýtt á undan mér að gera ákveðið verkefni fyrir skólann. Í dag ákvað ég hinsvega að nú gengi þetta bara ekki lengur og settist við tölvuna. Á um fjórum klukkutímum hefur mér tekist að gera megnið af þeirri vinnu sem ég hef bara alls ekki komið mér að fram að þessu. Frekar kjánalegt. Ég vona bara að nú sé ísinn brotinn og að þetta verði ekki að vefjast svona mikið fyrir mér í framtíðinni.

Nú ætla ég að fara út í bakarí og kaupa mér eitthvað gott með kaffinu til að verðlauna sjálfa mig.

Comments are closed.