…te

Ekkert Fréttablað í morgun, nema Stefán hafi ákveðið að fela það rækilega fyrir mér meðan ég svefnpurkaðist.

Ástæðan fyrir þreytu minni og leti í morgun er annars sú að í gær var ég í ónefndu teboði. Þar var mikið um góðar kræsingar og enn meira af Norðfirsku slúðri. Slíkt er óskaplega gott að fá með hæfilegu millibili. Af bloggurum voru þar staddar þær Bryndís heimshornaflakkari, Jóhanna ofurskjalavörður og Úrsúla apótekari.

Þegar ég kom heim, rétt um miðnættið var ég náttúrulega ekki skynsemismanneskja sem skreið beina leið upp í rúm, heldur asnaðist ég til að horfa á GB. Hæg hefðu heimatökin annars átt að vera að spyrja bara dómarann hvernig leikar hefðu farið.

Comments are closed.