Kurteis þjófur?

Bílinn minn er orðinn nokkuð gamall og þó svo að hann gangi svosem ágætlega er hinn og þessi krankleikinn farinn að þjaka hann. Eitt er það t.d. að ef ég læsi honum í frosti er mikil hætta á að ég geti ekki opnað hann aftur fyrr en hlánar. Þetta hefur orðið til þess að ég hef meira og minna skilið garminn eftir opinn í vetur. -Enda fátt í bílnum sem fengur gæti verið í að nappa.

Í dag, þegar ég kom út í bíl og var á leið í skólann, sá ég að í farþega sætinu frammí lá bók sem ég vissi að hafði verið í hanskahólfinu í gærkvöldi. Á bókina var búið að krota “læsa hurðunum”. Ég get hinsvegar ekki séð að hróflað hafi verið við neinu í bílnum nema að stóra bleika gluggaskafan mín með sópnum er horfin.

Nú er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að skrifa skilaboð til þjófsins og setja í bílinn þar sem ég útskýri hvernig standi á því að bíllinn er meira og minna alltaf opinn og biðja hann um að halda aftur af sér og sleppa því að fara inn í bílinn, þó svo að hann viti að það sé hægt.

2 Responses to “Kurteis þjófur?”

  1. Nonni Says:

    Hehehehe já ég legg til að þú gerir það!

  2. Jóhanna Says:

    Þetta er snilld! :)