Kaffi?
Þorrablótið í gær var þrælfínt þótt ég hafi verið frekar í rólegri kantinum. Fékk aftur dýrindis horssaket. Ýmiskonar skemmtiatriði voru að borðhaldi loknu. Þar fannst mér standa uppúr Árni Björnsson sem flutti skemmtilegt erindi um Þorra og Þorrablót. Ekki vissi ég að hann væri svona góður söngmaður. Fórum heim þegar farið var að nálgast miðnætti enda ég orðin þreytt og skemmtiatriðin virtust vera búin.
Er núna að baka kryddbrauð. Vill einhver koma í kaffi?
January 24th, 2005 at 6:45 pm
Bwaaaaa…er ósköp svöng í vinnunni að lesa þetta…grrgglgrrrrgggglll(garnagaulið) og eflaust allt kryddbrauðið búið enda 2ja daga gamalt! BUHUUUUUUUUUUU illllmandi kryddbrauð með smjeri…svlssssvlssss (slefan)
January 24th, 2005 at 9:16 pm
já takk!!!!
January 25th, 2005 at 11:44 pm
Kryddbrauðið var mjööööög gott.