Á Þorra
Í kvöld ætla ég á Þorrablót Ásatrúarfélagsins. Þar verður boðið upp á allskonar góðan Þorramat. Í fyrra var einnig boðið upp á indælis hrossakjöt. Ég mun sko ekki slá hendinni á móti því ef það verður aftur á boðstólum.
* * *
Síðasti þátturinn af The Office var pínlegur framanaf. Það munaði minnstu að ég gæfist upp á að horfa þar sem ég engdist um í stofusófanum. Harkaði þó af mér til þess eins að komast að því að allt virtist ætla að fara vel að lokum. Það er því nokkuð ljóst að þetta var síðasti þátturinn. Það bara er ekki hægt að bakka aftur í pínlega farið eftir svona endi!
* * *
Útvarpsgeðveikin GB er nú sem betur fer búin. Það verður kannski til þess að ég muni sjá og umgangast Stefán eitthvað pínulítið núna á næstu dögum. Það gæti orðið skemmtileg tilbreyting.